Mig langar að ræða svolítið um forræði og forræðishyggju, best
að byrja á því að útskýra forræðishyggju. Eins og nafnið gefur til
kynna er þetta ósköp svipað og uppeldi barna, foreldrar hafa forráð
yfir börnum sínum, sbr. Forræðisdeilur. Dæmi um þetta er t.d. þegar
móðir segir við barn sitt: “þú verður að vera með húfu, það kalt
úti!” Auðvitað er rétt hjá móðurinni að miðla af reynslu sinni og
vara barnið við, en hvernig á barnið að læra hvað er kalt. Tel ég
þar með að ef barnið er ekki varað við og fer út húfulaust, þá læri
það hvernig er að vera kalt á eyrunum og þá muni það að öllum
líkindum setja upp húfu næst þegar kalt er í veðri.
En nóg um það, forræðishyggja stjórnvalda er afskaplega áþekk
þessu, þeir setja reglur um hvað má og hvað má ekki sbr.
Umferðarlögin o.s.frv. En hvað gæti hugsanlega gerst ef að einhver
óprúttinn aðili tæki upp á því að keyra yfir á rauðu ljósi um miðja
nótt eftir að hafa gengið úr skugga um að enginn sé að koma úr
hinum áttunum. Það er alveg ljóst að það myndi allt fara í uppnám.
Tökum annað dæmi, aðeins öðruvísi, hvað gæti hugsanlega gerast ef
einhver eða einhverjir aðilar tæku upp á því að drekka áfengi á
almannafæri, eða jafnvel vera ölvaðir, það sem er stranglega bannað
samkvæmt okkar alheilögu lögum. Ég get ekki einu sinni hugsað þá
hugsun til enda.
Þann 1.júní næstkomandi stendur til að banna reykingar á öllum
opinberum stöðum, þ.m.t. veitingahús, barir og aðrir skemmtistaðir.
Ég býst við því að næst verði bannað að reykja á almannafæri eins
og annarsstaðar hefur verið gert. Þessu er ég hjartanlega sammála,
það er gott að aumingja bareigendurnir fá ekki einu sinni leyfi til
þess að leyfa viðskiptavinum sínum sem reykja, sem borgar reyndar
til jafns á við aðra, að stunda þann ósið sinn. Ég held að við
ættum að ganga ennþá lengra og banna tóbak eins og það leggur sig.
Og meðan við erum að því held að ég við ættum að banna áfengi, það
getur verið óhollt. Við ættum líka að banna flest annað sem er
óhollt, s.s. feitan mat, ég gæti tekið að mér að vinna fyrir
Forræðisstofnun ríkisins* og flokka hollan mat frá óhollum, t.d.
myndi vera hægt að setja viðmið um hvað mjólk, smjör, rjómi,
rjómaís o.fl. mætti innihalda mikla fitu. Hvað fleira, já við
myndum t.d. líka banna alla bíla og eldsneytisknúin farartæki,
útblástur frá slíku getur verið stórhættulegur við vissar aðstæður,
líkt og tóbaksreykur (það er reyndar hægt að deyja af of stórum
skammti af útblæstri bíla samstundis, það er erfitt með tóbaksreyk,
ef það er þá hægt), já og bönnum glerhluti, ef maður brýtur gler þá
getur það verið hættulegt, bönnum of beitta hnífa, öll lyf, reipi,
þetta eru allt hlutir sem hægt er að fremja sjálfsvíg með. Hvað
getum við bannað fleira, jú, bönnum fólki að lifa, það getur verið
stórhættulegt að lifa, lífið er fallvalt, slys og sjúkdómar eru
algeng, alltof algeng, þetta gengur ekki lengur, bönnum allt!
En að öllu gríni slepptu er ég mikið á móti forræðishyggju í
öllum myndum og ég tel að hún miði að því, væntanlega og vonandi
ómeðvitað, að útrýma allri sjálfstæðri hugsun og almennu
sjálfstæði.
*Tilbúin ríkisstofnun, fyrirfinnst hvergi nema í skemmdu höfði
höfundar
Ég tek þig með næst þegar þú kemur í bæinn
Kveðja, Palli