Orðsifjar og ný orðatiltæki
Now at last we can see the purge in the full ravage of its moral obscenity
Þetta er tekið úr pistli eftir hinn margheiðraða
ákvað ég að taka þetta í réttri röð og byrja að hreyfa mig
áður en ég hætti að reykja. Meðalvigtin á því sem ég er lyfta
daglega er 5 tonn (2 tonn til eða frá). Enda býst ég við að
verða eins og Arnold eftir um það bil 4
í fréttum, jú, það er ekki nóg með að maður sé orðinn
heilsuræktarfrík heldur er ég líka að fara að boxa við Agga. Við
erum að hugsa um að kaupa okkur grímur og hanska setja upp
sýningarbardaga. Næst á dagskrá er að ákveða dagsetningu og eftir
það fer maður á fullt í æfingar. Ég tel mig hafa líkurnar mín megin
vegna gífurlegrar snerpu og það að báðir fæturnir á mér eru í lagi.
Frétt dagsins
fullur, á Húsavík, og keyrði útaf. Bíllinn skemmdist eitthvað, ekki
alveg viss hversu mikið. Það slasaðist enginn og allt er í góðu
lagi, þannig séð. Ívar fær sérstakar þakkir fyrir að koma að ná í
okkur, ef þið eruð strandaglópar einhversstaðar hringiði bara í
There hath never been a mind as strong as this, A MIND OF A STUBBORN MONKEY
að byrja á því að útskýra forræðishyggju. Eins og nafnið gefur til
kynna er þetta ósköp svipað og uppeldi barna, foreldrar hafa forráð
yfir börnum sínum, sbr. Forræðisdeilur. Dæmi um þetta er t.d. þegar
móðir segir við barn sitt: “þú verður að vera með húfu, það kalt
úti!” Auðvitað er rétt hjá móðurinni að miðla af reynslu sinni og
vara barnið við, en hvernig á barnið að læra hvað er kalt. Tel ég
þar með að ef barnið er ekki varað við og fer út húfulaust, þá læri
það hvernig er að vera kalt á eyrunum og þá muni það að öllum
þessu, þeir setja reglur um hvað má og hvað má ekki sbr.
Umferðarlögin o.s.frv. En hvað gæti hugsanlega gerst ef að einhver
óprúttinn aðili tæki upp á því að keyra yfir á rauðu ljósi um miðja
nótt eftir að hafa gengið úr skugga um að enginn sé að koma úr
hinum áttunum. Það er alveg ljóst að það myndi allt fara í uppnám.
Tökum annað dæmi, aðeins öðruvísi, hvað gæti hugsanlega gerast ef
einhver eða einhverjir aðilar tæku upp á því að drekka áfengi á
almannafæri, eða jafnvel vera ölvaðir, það sem er stranglega bannað
samkvæmt okkar alheilögu lögum. Ég get ekki einu sinni hugsað þá
opinberum stöðum, þ.m.t. veitingahús, barir og aðrir skemmtistaðir.
Ég býst við því að næst verði bannað að reykja á almannafæri eins
og annarsstaðar hefur verið gert. Þessu er ég hjartanlega sammála,
það er gott að aumingja bareigendurnir fá ekki einu sinni leyfi til
þess að leyfa viðskiptavinum sínum sem reykja, sem borgar reyndar
til jafns á við aðra, að stunda þann ósið sinn. Ég held að við
ættum að ganga ennþá lengra og banna tóbak eins og það leggur sig.
Og meðan við erum að því held að ég við ættum að banna áfengi, það
getur verið óhollt. Við ættum líka að banna flest annað sem er
óhollt, s.s. feitan mat, ég gæti tekið að mér að vinna fyrir
Forræðisstofnun ríkisins* og flokka hollan mat frá óhollum, t.d.
myndi vera hægt að setja viðmið um hvað mjólk, smjör, rjómi,
rjómaís o.fl. mætti innihalda mikla fitu. Hvað fleira, já við
myndum t.d. líka banna alla bíla og eldsneytisknúin farartæki,
útblástur frá slíku getur verið stórhættulegur við vissar aðstæður,
líkt og tóbaksreykur (það er reyndar hægt að deyja af of stórum
skammti af útblæstri bíla samstundis, það er erfitt með tóbaksreyk,
ef það er þá hægt), já og bönnum glerhluti, ef maður brýtur gler þá
getur það verið hættulegt, bönnum of beitta hnífa, öll lyf, reipi,
þetta eru allt hlutir sem hægt er að fremja sjálfsvíg með. Hvað
getum við bannað fleira, jú, bönnum fólki að lifa, það getur verið
stórhættulegt að lifa, lífið er fallvalt, slys og sjúkdómar eru
öllum myndum og ég tel að hún miði að því, væntanlega og vonandi
ómeðvitað, að útrýma allri sjálfstæðri hugsun og almennu
"Öreigarnir hafa engu að tapa nema hlekkjum sínum. En þeir hafa heila veröld til að vinna."*
Sumir vilja meina, þessa dagana, að það sé Gerður Kristný. Mér
þótti hún eitursvöl að öllu leyti þangað til ég las bakþanka eftir
hana aftan á Fréttablaðinu um daginn. Þar féll hún í þá leiðinlegu
gildru að pirra sig á því að það væru fáar konur í öllu sköpuðu, á
Alþingi, í stjórnunarstöðum o.s.frv. Góðvinur allra, Sigmar
Vilhjálmsson, skrifaði snilldarpistil aftan á blaðið Austurlandið
um daginn þar sem að hann lýsti sínum, og reyndar mínum, skoðunum
um kynjaskiptingu á Alþingi. Hann lýsti því þannig að "líta bæri á
þingmenn sem kynlausar verur sem ber að kjósa fyrir þá hugsjón og
þeim áhuga sem viðkomandi hefur á samfélagslegum málefnum, hvort
sem viðkomandi pissar sitjandi eða standandi."** Þetta finnst mér
vera mergurinn málsins, persónan á að vera metin eftir verðleikum,
ekki eftir kynfærunum. Þrátt fyrir það, finnst mér við frekar leyfa
karlmönnum að njóta vafans þegar er verið að kjósa til embætta og
við virðumst hallast frekar að karlmönnum. Það er kannski vegna
þess að flestir eru aldir upp við að karlmaðurinn sé yfirvaldið á
heimilinu, þó að það sé auðvitað ekki algilt og er á undanhaldi í
Prjónahúfur og önnur hjálpartæki ástarlífsins
fer eilítið í taugarnar á mér. Ég, þrátt fyrir að vera á miklum
fjallabíl, þarf að moka mig inn í bílastæðið mitt á kvöldin og svo
aftur út á morgnana. Ég get ekki sagt að þetta sé eftirlætisiðja
mín en maður lætur sig hafa það. Ég er byrjaður að prjóna nýja húfu
og á þessi að vera tvöföld. Mín gamla einfalda er hvergi nærri nógu
Að öðru. Þegar Eyvindur Vopni hefði flust til Íslands og numið land
frá innri-Krossavík og að Hofi og öllum löndum sem því fylgja, gat
hann sest að. Fáum árum síðar fluttist hingað til lands Steinbjörn
Körtur, sonur Refs rauða, bróður Eyvindar. Eyvindur tók vel á móti
bróðursyni sínum og gaf honum Hofslöndin öll. Steinbjörn eignaðist
þrjá sonu, Þormóð stikublíg, sem bjó í Sunnudal, Ref, sem bjó á
Refstöðum og Egil, sem bjó á Egilsstöðum (Af þessum þrem var og er
vitað mál að Refur hefur borið af.). En Steinbjörn var skuldum
vafinn og að mestu leyti algjör aumingi. Þorsteinn hinn hvíti,
Ölvissonar hins hvíta, kom til lands og keypti land af Eyvindi og
bjó að Tóftavöllum við Síreksstaði í nokkur ár. Þá heimti hann
leigufé sitt af Steinbirni, sem hafði ekkert að gefa nema landið og
Gary, my balls.....you're breaking them.
eru einhvers lags hreyfimyndaauglýsingar sem eru framreiddar á
einhvern tilviljanakenndan hátt. Oftar en ekki finnast mér þetta
vera samfylkingarauglýsingar. Jú, það er gott og blessað að
BlogCentral.is selji þetta auglýsingapláss. Og ekkert er að því að
samfylkingin, eða þeirra prófkjörsframbjóðendur, kaupi sér
auglýsingapláss. En nú er ég, að vísu frítt, að nýta mér þjónustu
þessa fyrirtækis og ég er harður andstæðingur samfylkingarinnar í
öllum sínum myndum. Ég er eiginlega meiri and-samfylkingarmaður en
Sjálfstæðismaður og því finnst mér að fólk, eins og ég, ætti að
viðtekin venja í dag að horfa framhjá því hversu illa fólk, og þá
aðallega ungt fólk, er tal- og skrifandi á íslensku. Nú er ég
mikill aðdáandi íslenskrar tungu og geri mitt besta í að tala
fallegt og gott mál og einnig að reyna að sjá til þess að fólkið í
kringum mig geri það líka. Enginn er fullkominn í þessum málum
frekar öðrum og allra síst ég, en það eina sem maður getur reynt er
að vera vakandi fyrir þessum vanda. Vanda segi ég þegar ég ætti
frekar að segja neyðarástand, því að auk þess sem orðaforði og
réttritun krakka og ungs fólks sé til háborinnar skammar, þá hefur
prófarkalestri hjá öllum dagblöðum og tímaritum stórlega farið
aftur. Fyrst er vandamálið að fólkið sem skrifar fréttirnar og
fyrirsagnirnar er kannski óskrifandi, en svo er fólkið, sem er
ráðið sérstaklega til að fara yfir texta gagngert til þess að finna
og útiloka villur, ekki að standa sig heldur. Eitthvað verður að
Dæmisaga
Eins og sjá má, var ég gabbaður til bjórdrykkju og þykir mér það
miður. Ég stóð í þeirri meiningu að þetta væri eplasafi en eins og
Ég vil byrja á því að segja ykkur litla dæmisögu um forfaðir minn
Eins og gefur að skilja hefur þessi maður verið alveg einstakur í
háttum og allar illdeilur sem hafa verið á milli hans og Haraldar
hárfagra hafa komið upp vegna hins síðarnefnda. Refur var þannig
maður að hann tók aldrei slæma ákvörðun(fyrir utan einu sinni, kem
að því síðar). Hann og bróðir hans, Eyvindur Vopni lentu sumsé í
barðinu á einræðisherranum/harðstjóranum (Núorðið er talið fullvíst
að hann hafi einnig gert hryðjuverkamönnum hátt undir höfði og að
hann hafi tengst Al-Qaída) Haraldi hárfagra. Eyvindur, í allri
sinni forheimsku, vildi ólmur drífa sig til Íslands þar sem þeir
höfðu fregnir af bæði frændum sínum og einhverju almúgafólki sem
sest hafði þar að. Eyvindur taldi það góðar fréttir að þeir höfðu
ekki heyrt neinar fréttir af þessu fólki. Refur taldi hins vegar,
að þeir skildu fara að undirbúa ferðina en ekki leggja af stað fyrr
þeir höfðu fengið frekari fregnir. Þegar sá dagur rann upp að allt
var ferðbúið og bræðurnir hvor búnir að fylla sitt skip hélt
Eyvindur á fund Refs og hafði orð á því hvort þeir ættu ekki að
leggja í hann. Ennþá vildi Refur bíða og sagðist hafa ákveðna
iðrakennd (e. Gut-feeling) fyrir því að Haraldur hárfagri myndi
koma persónulega og biðjast afsökunar á misklíði því sem þeir áttu
í. Eyvindur, fljótfær eins og hann var, sagðist ekki geta beðið
lengur og ákvað að leggja þegar í hann. Þannig að Eyvindur lét
fljótfærnina ráða en þegar Refur hafði kvatt hann sá hann hóp manna
koma ríðandi í átt til sín og reið hann á móti þeim. Þar voru
komnir fulltrúar konungs og biðu þeir ekki boðana en hjuggu þegar
Boðskapurinn er þessi: Fljótfærni er ekki alltaf af hinu góða, en
Rannsóknarleiðangur
Þetta hefur mig lengi langað til að vita. Þess vegna hef ég ákveðið
að fara í lítinn rannsóknartúr til fyrrverandi herraþjóðar okkar,
Danmerkur, og líður senn að brottför. Eins og gefur að skilja mun
ég að sjálfsögðu ekki koma til með að smakka "bjórinn" sjálfur,
heldur mun ég vera þögull hjástendingur(e. bystander) og fylgjast
með. Mun ég að sjálfsögðu einnig skoða hvaða tónlist og samkomulög
Orðsifjar og ný orðatiltæki
og/eða gefa út bók um þessi sérstöku málefni. Nú, þessi öfl vilja
ekki láta nefna sig á nafn þannig að við skulum halda því þannig,
til að byrja með. Við skulum bara segja að þessi öfl hafa mikil
ítök í heimi stjórn- og fjármála. Þannig mun ég einnig reka, ja,
ekki áróður en einhvers lags fylgiróður en það mun ekki verða
mikið. Jæja, ég vona að allir skemmti sér vel og kíki hér inn öðru